500 gr döðlur - saxaðar
200-250 gr smjör
100 gr púðursykur
Allt hitað vel saman í potti, næstum því maukað.
5-6 bollar rice crispies hrært saman við.
Sett í mót, þjappað með gaffli.
3 plötur suðusúkkulaði
2-3 msk olía
brætt saman í potti og súkkulaðinu hellt yfir.
Geymist best í frysti, skorið í teninga....
No comments:
Post a Comment